26.2.2009 | 16:17
Þetta mjakast áfram
Ég hef reynt að halda þá reglu að sauma að minnsta kosti einn þráð á dag - sama hversu þreytt mér finnst ég vera. Enda er það oftast þannig að þegar ég er búin að sauma einn þráð þá langar mér að sauma næsta og þar næsta - það er oft bara erfitt að hafa sig í að byrja. Svona var staðan á jólaálfinum í gærkvöldi.
Ég saumaði meira segja meðan ég horfði á Taggart á DR1. Það er ekkert smá gaman að horfa á þessa gömlu þætti - af hverju íslensku stöðvarnar endursýna aldrei neina gamla þætti skil ég ekki. Það ætti að vera ódýrara en að kaupa þessa bandarísku þætti í tonnatali.
útsaumur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.2.2009 | 17:34
Eitt klár og byrjuð á næsta
Ég biðst afsökunar á þessu langa hléi. Ég týndi saumaskapinu í smá tíma en sem betur fer fann ég það aftur.
Núna er ég að sauma þessar litlu jólasokka.
Ég er búin að sauma einn þ.e. piparkökustrákinn
og byrjuð á þeim með jólaálfinum.
Hvort að ég sauma þá alla núna veit ég ekki, við sjáum bara til. Svo getur líka verið að ég þurfi að sauma gjöf sem ég get ekki sýnt hér, ég veit það ekki ennþá en mig grunar það. Best að segja ekkert of mikið.
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni. Ætlaði bara að leyfa ykkur að sjá hvað ég væri að bralla þessa daganna. Hef ekkert að segja annað.
Leyfi ykkur að fylgjast með framvindu mála með jólaálfasokkinn.
útsaumur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2008 | 17:17
Leti
Ég hef ekkert saumað - ekkert. Ég þarf væntanlega að finna mér eitthvað skemmtilegra að sauma eða jafnvel að skiptast á taka einn dag í viku í þessa mynd og gera eitthvað skemmtilegra aðra daga.
Þrátt fyrir að hafa ekki nennt að sauma hef ég sko nennt af vafra á netinu og skoða og versla í huganum. Mig langar í svo margt; efni, þræði, hnappa, munstur og kit. Eins og gengið er núna er brjálæði að panta núna en einhver rödd þarna hvíslar stöðugt í eyrað á mér að gengið eigi bara eftir að versna og því sé eins gott að panta núna. Sem betur fer er önnur rödd - háværari- sem minnir mig á að ég nóg til að sauma.
Vinir og fjölskylda | Breytt 26.11.2008 kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2008 | 15:49
Nokkur klár og annað í vinnslu
Jæja þá er heldur betur komin tími á uppfærslu. Ég hef verið að dunda mér við hitt og þetta sl. mánuð, hef ekki setið mikið við og saumað, en þó eitthvað hefur stúlkan gert.
Á síðasta ári saumaði ég nokkra Mill Hill hluti. Ég gekk frá einum vettlingi en annað var ófrágengið. Ég gaf mér ekki tíma til að ganga frá þessu fyrir síðustu jól og þá var svo langt til næstu jóla sem eru núna bara handan við hornið. Þannig að ég dreif í þessu og klippti út og gekk frá þessum sjö hlutum sem voru fullsaumaðir en ófrágengnir. Því miður koma myndirnar ekki vel út - eru eitthvað svo dökkar. Ég á ennþá tvö svona lítil Mill Hill kit ósaumuð.
Ég leyfði vettlingnum sem ég var þegar búin að klára að vera með á myndinni (ljótt að skilja útundan). Mér fannst mjög gaman að sauma þessa vettlinga og finnst þeir koma vel út þegar búið er að ganga frá þeim
Þá saumaði ég tvær jólamyndir og ætla að reyna að gera eitthvað við þær annað en að setja þær niður í skúffu. Ég var að láta mér detta í hug að gera litla poka. Hér eru þær myndir, ég leyfi ykkur svo að sjá hvað verður úr þessu.
Þá er það myndin sem ég er að reyna að sauma í núna. Ég byrjaði á henni í sumar og fylgdi hún mér í sumarbústað og ættarmót o.fl. en lítið var saumað. Ég er að reyna að sauma í hana svona þegar ég nenni. Svona var staðan í gærkvöldi. Ég keypti hana á útsölu í A4 - ég á það nefnilega til að kaupa hluti sem ég hefði aldrei annars keypt á útsölum.
útsaumur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.10.2008 | 16:30
Kisuæði
Ég er enn í kisunum. Ætli ég sé að verða kisuóð. Þessa kláraði ég í fyrra dag. Þetta er ekki góð mynd - litirnir er eitthvað skrítnir. Sem betur fer á ég munstur af nokkrum kisum í viðbót - veit samt ekki hvort ég sauma fleiri kisur strax - en mér líður allavega vel að vita af þeim.
Kannski ég saumi eitthvað jóla - innan við 3 mánuðir til jóla - þarf að hugsa þetta aðeins. Valkvíði - Valkvíði - þetta er erfitt líf
útsaumur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2008 | 08:37
Komin aftur - og farin að sauma á ný
Eftir að ég kláraði kisuna mína var ég í hálfgerðu tómarúmi. Hélt að mig langaði að sauma jólamynd en hafði víst takmarkaðan áhuga á henni því þrátt fyrir að sú mynd hafi fylgt mér í allt sumar þá hefur mjög lítið verið saumað.
Um síðustu helgi fór ég að skoða gamalt dót og fann þá þessa kisu. Ég saumaði hana í fyrra og gaf en gleymdi að taka mynd, þá saumaði ég hana reyndar gráa eins og mynstrið segir en breytti henni núna og finnst hún bara fallegri svona gul og brún.
útsaumur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.6.2008 | 12:05
Kisuklár
útsaumur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.6.2008 | 10:29
Ég er hér ennþá
Ef einhver hefur verið að fygjast með þessu bloggi þá hefur sá hinn sami örugglega haldið að ég væri hætt og farin. Ég er þó hér enn en bæði og sauma og bloggvirkni hafa verið í lágmarki. Ég er þó búin með kisuna mína en get því miður ekki sýnt neinar myndir þar sem myndavélin og tölvan vilja ekki kannast hvor við aðra. Ég hef því ekki getað flutt myndir í tölvuna undanfarið en vonandi finn ég lausn á því fljótlega.
Ég get þó sýnt mynd sem ég saumaði í vetur og setti svo núna í kort til vinkonu minnar en hún var að útskrifast á síðustu helgi.
Annars er lítið að frétta af saumaskap þessa dagana. Hef þó verið að skoða blöð og róta í saumakörfunni og aldrei að vita nema ég finni eitthvað sem mig langar að gera. Eða réttara sagt að ég geti valið eitthvað eitt úr öllu því sem mig langar að gera.
Þangað til næst - hafið það gott og njótið sumarsins en passið ykkur á ísbjörnum.
útsaumur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2008 | 16:12
Gleðilegan 1. maí
Gleðilegan 1. maí og uppstigningardag. Ætti ekki að vera einhver lög sem bönnuðu svona tvöfalda frídaga. Atvinnurekendur hljóta að gleðjast.
Svona var staðan í gærkvöldi. Í stólnum eru sex rauðir litir þó að það sjáist varla á myndinni. Reyndar er ég bara búin að sauma með tveim rauðum litum að neðan en þetta kemur smá saman. Mér finnst svo gaman að sauma þessa mynd. Oft fæ ég leið þegar ég er farin að sjá hylla undir endalokin og langar að byrja á einhverju nýju. En í dag reyni ég að beita sjálfa mig ströngum aga og leyfi mér aldrei að vera með fleiri en 2 stykki ókláruð í einu. Annars fara stykkin fljótt að safnast upp hjá mér og svo verð ég svo stolt af sjálfri mér að hafa haldið út að klára. En ég verð þó að viðurkenna að ég farin að huga að næsta verkefni. Alltaf hægt að finna afsökun til að fletta blöðum, skoða í staflann og auðvitað kíkja á vefverslanir.
22.4.2008 | 17:14
Voða dugleg eða þannig sko
útsaumur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)